Innlent

Fækka þeim til­vikum þar sem skrifa þarf til­vísanir fyrir börn

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Reglugerðin mun fækka þeim tilvikum þar sem heimilislæknar þurfa að skrifa tilvísanir fyrir börn.
Reglugerðin mun fækka þeim tilvikum þar sem heimilislæknar þurfa að skrifa tilvísanir fyrir börn. Getty

Heilbrigðisráðherra hyggst leggja fram reglugerð til að einfalda fyrirkomulag tilvísana fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Læknar hafa hótað því að hætta að gefa út tilvísanir vegna barna.

Samkvæmt reglugerð sem nú er í gildi ber heilsugæslulæknum að skrifa tilvísanir fyrir börn á aldrinum tveggja til átján ára, ef þau þurfa á þjónustu sérgreinalæknis að halda. Tilvísun er forsenda þess að ekki þurfi að greiða fyrir þjónustuna.

Heimilislæknar segja álagið vegna tilvísanaskrifa óhemju mikið og þá sé málum oft þannig háttað að læknirinn eigi enga eiginlega aðkomu að umönnun sjúklingsins heldur sé hann aðeins að uppfylla kröfur um undirskrift á pappír.

Samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins virðist enn gert ráð fyrir því að heimilislæknar þurfi að skrifa tilvísun á sérfræðing en sú breyting verður á að sá sérfræðingur getur vísað á annan sérgreinalækni án þess að heimilislæknirinn þurfi að koma þar að.

Þá geta sjúkrahúslæknar vísað á aðra sérfræðinga án milligöngu heimilislæknis.

Bráða- og vaktþjónusta barnalækna verður einnig undanskilin tilvísunum frá heimilislækni og sömuleiðis þjónusta augnlækna og kvensjúkdómalækna. Rannsóknar- og myndgreiningarþjónusta barna verður einnig gjaldfrjáls þótt ekki liggi fyrir tilvísun frá heilsugæslulækni.

„Áfram verður unnið að hagræðingu og skilvirkni í samvinnu við lækna, sem og mat lagt á þessar breytingar og þá hvort frekari breytinga sé þörf í samráði við félög lækna og stofnanir.

Áformaðar breytingar hafa verið kynntar fyrir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Sjúkratryggingum Íslands og fagfélögum heimilislækna og barnalækna og eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda,“ segir á vef Stjórnarráðsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×